Skilmálar

Sendingarkostnaður, valmöguleikar og afhending vöru

Pantanir eru afgreiddar innan 24 klukkustunda og eru sendar næsta virka dag með Dropp. Afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp gildir hverju sinni. Ekki er rukkaður sendingarkostnaður fyrir pantanir nema óskað sé eftir því að fá sent heim að dyrum. Hægt er að hafa samband við okkur ef óskað er eftir því að sækja vöruna samdægurs, hún afhendist í smáralind milli 08-16.

Að skipta eða skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með millifærslu fyrir vörunni en flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um að allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp verði ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Ef upp koma vandamál vinsamlega hafið samband á netfangið okkar eða undir "Hafa samband".

Spikebolti (Spikeball)

1208952739

kt:1208952739

Hafnarbraut, Kópavogur

VSK: 144844